14.05.2009 00:17:00 / Þórhildur

13. maí 2009

Brynja. Katrín. Angela. Hafdís. Bryndís.

Helena
. Þórhildur. Karen. Rebekka.


What is up? ;)


séns á sleik? neiiii komdu bara í sólbrekkuskóg :lol:

Ég ætla að hjálpa :)

Draumar geta ræst.

En hvað með öll hin börnin í hinum löndunum?

Hvaða væll er þetta.
Dagurinn minn i dag ég vaknaði klukkan 10! fór fram úr og mamma var komin heim frá florida og fekk fult af nýjum fötum!;) neinei ég segji svona.

Vá, hausinn minn er svooo fullur af spurningum. Það sem ég vil og stefni að breytist með hverri mynd sem ég sé eða hverjum fyrirlestri sem ég heyri. Ég geri mér grein fyrir því að það sem ég geri núna skiptir öllu um það hvernig framtíðin verður og þess vegna... Öhh. Ég veit ekki. Ég bara virkilega veit ekki!

Byrði betri
berat maður brautu
en sé mannvit mikið.
(úr Hávamálum)

Love you girls:)


...heyrðu, ég gleymdist!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 17:59:08 / Þórhildur

Það er ennþá mánudagur.

17. september 2007  

 

Það rignir og það er kalt. Þetta er ekki dagurinn þar sem maður finnur gleði í hinum minnstu hlutum, né dagurinn sem maður hneykslast ótrúlega mikið á ástandi samfélagsins. Þetta er dagurinn sem maður lítur framhjá hlutum sem eru gleðilegir, kjánalegir og móðgandi og bara 'jájá, ókei'. Stelpa prumpaði þegar ég var á klósettinu í dag, ekkert geggjað hátt bara svona rétt aðeins, nóg til að ég heyrði. Ég hló ekki, ég bara sturtaði niður og fór út... Held hún hafi verið vandræðaleg. Róni bað mig um pening í dag, ég ranghvolfdi ekki augunum þegar ég var komin framhjá. Ég bara, 'jájá', hélt áfram að skrifa sms. Fólk hegðar sér í bylgjum. Tímabilum. Eitt tímabilið hangir maður bara með þessum tveimur vinum, annað tímabilið er maður duglegri en vanalega að læra svo kemur tímabil sem maður eyðir í strák(stelpu), kúr, kynlíf. Í hverju tímabili breytist eitthvað í lífi manns. Skoðanir manns breytast, sumir hlutir detta út en aðrir færast nær. Ég hlakka til að komast á næsta tímabil því tímabilið sem er núna, eeeh. Not so much. Enginn strákur (ekki nema þið teljið Óla Daða með;), allar vinkonurnar í sitthvoru horninu, er ekki alveg að fara að bonda geggjað mikið við mömmu núna... Og svo er ég búin að missa af svo miklu sem gerðist í sumar hjá krökkunum í skólanum. Lot of catching up to do.

Angela, í raun er ég núna á tímabilinu sem þú varst á í lok tíundabekkjar til svona miðja fyrsta bekk Kvennó. Vantaði eitthvað og núna fékkstu rúmlega handfull af KjartaniJ

Hérna er greinin sem ég skrifaði um Keflavík í Loka laufeyjarson. Veit ekki af hverju þetta kom svona :)

Þórhildur skrifar frá Keflavík

„Í Reykjanesbæ búa 12.400 manns, og fjölgar ört!“ Þetta er skrifað stórum stöfum á skilti sem tekur á móti hverjum þeim sem leggur leið sína inn í bæinn og á vel við. Reykjanesbær er á mikilli uppleið á sviði menninga, fólksfjölda, . Á ljósanótt í upphafi mánaðarins voru mörg þúsund manns saman komin hér í bæ og var met slegið í bílaröð þegar fólk lagði leið sína út úr bænum og var öll Reykjanesbrautin þéttsetin bílum. Geri aðrir betur! 

Reykjanesbær samanstendur af Keflavík, Njarðvík og Höfnum. Keflavík þar sem öll helsta bæjarstarfsemin er, spítalinn, framhaldsskólinn, dýrabúðin, yfir tíu hárgreiðslustofur og ‘Rúnturinn’ (hin almenna afþreying ungmenna í bænum sem felst í því að keyra sömu götuna aftur og aftur og aftur). Í Njarðvík má finna eitt bakarí, matvöruverslunina Kost þar sem fást helstu nauðsynjar á uppsprengdu verði og svo Njarðvíkursjoppu (sem heitir í raun Biðskýlið;). Ekki er hægt að fara mörgum orðum um Hafnir. Þar eru fimm götur og ein lítil kirkja. Keflavík hefur að geyma alveg ógrynni af hraðahindrunum og hringtorgum. Bæjaryfirvöld hafa nýlega tekið upp á því að ‘pimpa’ aðeins upp hringtorgin með alls kyns aðferðum. Nokkur hafa verið skreytt með mismunandi hætti til dæmis með ljósleiðaraskreytingu, risasverði og gosbrunni svo eitthvað sé nefnt. Einnig hafa þau fengið nöfn og þar vantar ekki frumlegheitin. Nöfnin eru Reykjavíkur-, Parisar-, Washington- og Londontorg. 

Undanfarin ár hefur fólk af erlendum uppruna orðið algengari sjón í bænum. Eru þetta flest allt fjölskyldur frá löndum eins og Litháen og Póllandi og komin hingað á vit ævintýranna. Pólverjarnir hafa núna nýlega opnað verslun á Iðavöllunum og eru búnir að opna matvöruverslun á Hringbrautinni við hliðina á Fiskbúðinni og ber hún hið fagra nafn ‘Polski mini market’.  

Stapinn frægi er hættur að halda böll og skemmtanir í bili og þurfa bæjarbúar nú að finna sér annað húsnæði fyrir slíkt. Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja dó ekki ráðalaust heldur tóku þau sig saman og héldu busaball sitt í Stærri salnum í Íþróttahúsi Reykjanesbæjar. Heppnaðist það vonum framar og er NFS strax farið að tala um að fá stærri salinn aftur fyrir næsta ball.  

230 Keflavík, Bítlabærinn, „litla Ameríka“, Kef city, 260 Njarðvík, Njarlem, 233 Hafnir. Reykjanesbær.Staðurinn til að vera á!

 

Ég skrifa ekki meir í bili, ég ætla að leggja mig. Elska ykkur! Je t'embrasse!

-Þórhildur :P


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 12:30:05 / rebekka

:)

Já þá er það heima hjá Karenu í kvöld? bring the camer því að við ætlum að flippa fyrir framan spegilin:D HAHAHA. Nei við erum ekki svona flippaðar.

Þetta verðum við. Við ætlum að poppamikið fyrir hana þórhildi því hún er i harðri kosningabaráttu og því við getum ekki kosið hana skulum við standa með henni á þennan hátt.

Hvernig lýst ykkur á þenna myndavélaspeglapopphitting?

rebekka, hafdis

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 22:05:56 / rebekka

17?

Er lylkiorðið svona einfalt eða erum við að fara svona oft inná þessa síðu?

Já ég held að það sé komið í ljós teljararnir blekkja! hahaha.

Kannski er þetta þeir sem kikja en komast ekki inn á hver veit?.

Jæja mér lýst ekkert á þetta, hafdís hvar eru myndirnar? Hljóðneminn á næsta leiti ég hlakka svo til að sjá hana helenu mína performa. Bakkröddin, Hún ermikilvæg í idol núna er kall sem var bakrödd, og nú er hann á leiðinni kannski að verða"frægur" söngvari þótt idol stjörnurnar hafa ekki allar klifrað jafn hátt upp á stjörnuhimininn.

Vikan hálfnuð ekkert að frétta af ykkur? Hvað á að gera um helgina,

Get ekki beðið að fara á hljóðnemann og eins gott að manni verður tryggður miði á ballið? Því ég hef nú ekki komið á mörg og hlakka i firsta skipti til sjá ykkur pjöllur. HAHA:)

Rebekka er úti verið duglegar hér!

Adios amigas.


» 11 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 15:27:38 / hafdís

#$%/#"#$%&(&/%$#

 

 

Jæja stelpur förum nú að setja eitthvað krassandi hérna inn ;) Eitthverjar myndir og svona...Höldum þessu aðeins gangandi :D Ekki sammála ?  

HAFDÍS


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 16:22:35 / rebekka

Bloggið mikla...

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 16:34:10 / rebekka

Ég er að fíla þettal,

Kjéllur. eruði ekki til í þetta? ég verð nú að segja að þetta er skemmtilegt. Sem sagt á Laugardaginn verður maturinn. En fyrir ykkur sem eruð að fara út á lífið þá byrjar þetta bara snemma klukkan6.

Kjéllur, hvað segiði um það?

Og já hér koma nokkrar sætar af okkur.

              
STELPUR? eða ætti ég að segj það um allar?
     
I feel pretty, also pretty..
jæja svariði nú hvort þið mætið og elskurnar mína veriði tímanlegar:)
 

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 12:24:21 / hafdís

Taka þessa síðu upp aftur....?

 

LYKILORÐ

Jæja stelpur hvað segiði um að taka þessa síðu upp aftur og hafa Lykilorð þar sem aðeins VIÐ vitum. Þá getum við sett ýmiss konar upplýsingar sem eiga ekki að vera fyrir almenning... eins og að rebekka hafi verið í aðgerð og ein af okkur nefni enginn nöfn, en hún hafi frétt ´það þegar rebekka var búin að jafna sig eftri aðgerðina og komin aftur í skólann.. En það er örugglega enginn að fara að lesa þetta svo ég get röflað bara í poka.. ;) En endilega förum að hittast um helgina :D Ekki game í þetta? svo getum við sett alss konar bull myndir sem er ekku almennigi bjóðandi ..;)

Hafdís & Rebekka..

TILHAMINGJUMEÐVALENTíNUSARDAGINNELSKURNARMÍNAR


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 08:19:25 / katryn

felix-

Ef það er eitthver sem kíkir eitthverntíman á þessa síðu,

 þá vil é benda á að við erum komnar með nýja síðu...

sem er ekki flóknari en svo..

www.blog.central.is/felix-/

one.love <3


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 23:34:04 / hafdís

Ljósanæturmyndin

Jæja veriði marg blessuð :D
Ætla að blogga ´hér eftir langan tíma þótt ég hafi nú verið s´má með rebekku í þessu í dag ;) en Já  ætlaði bara að setja inn þessa mynd þar sem hún er ekkert nema bjútí ;) og ætla ég að fara að sofa og er von á þrusubloggi núna bráðum og verða þá eitthverjar myndir sem koma og svona ;)
En er bara ekki málið stelpur að byrja með þessa síðu aftur? Þessi Felix síða er ekki allvega að gera sig og finnst mér bara verða að vera með síðu núna þar sem við hittumst alltof sjaldan ;) en hvað finnst ykkur?

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 14:53:07 / rebekka

Bjútí.

Sæl öll sömul.

ég og hafdís sitjum hér í rólegheitunum á bókarsafninu að bíða eftir að komast heim. Já það er vesenið með skóla í bænum þurfum að bíða hátt i 3 tíma stundum til að komast heim.

Hafdís says: Nei rebekka við höfum aldrei beðið í 3 tíma:O

Rebekka says: okei svolitilar ýkjur en einn og háflur tími getur stundum verið alveg rosalega lengi að líða og þá bara eins og 3klukkutímar...

Mánudagurinn í gær.

ég vaknaði klukkan 06:45. og þá ákvað að sofa aðeins lengur og vaknaði 06:52. hahah neinie eg segji nú svona. En Vaknaði og við vorum á góðum tíma. Þanga til að við komum til hafdísar þá var allt slökkt og við ákváðum að hringja i hana. Var kerlingin ekki sofandi? Hafdís var búin að afreka það að sofa of lengi. Já af þessum 4 eða 5 vikum höfðum við aldrei sofið of lengi. En við gáfum henni 2 mínutur.

Ég og Eyjólfur fórum til köben um helgina. Rosalega skemmtileg ferð. komum á föstudegi fórum aðeins út að ganga og svo skemmtum við okkur kongunlega í kongsinsköben. höhö. ég verslaði rosalega lítið og það var bara fínt. Þakka þér fyrir ferðin blogga kannski betur um þetta allt seinna við erum farnar að læra eða bara leika okkur. haha:)

Rebekka og Hafdís.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 12:44:35 / katryn

Jáb.

Np; Nothin. ;/.

Mood; Feeling Wierd. lawl.

Já hæj :].. Viti menn.. ég var í rather asnalegum fíling þessar frímínútur og ákvað að vera geggjað mikið ein og fara í tölfuna :] er núna samt að far aí tvöfaldan tölvutíma.. svo er frí í bókfærslu og svo er Enska.. og svo... HEIM!:D víííj^^.. langar svoo heim.. nenni ekki að vera hérna leeengur :P..

En hef ekkert mikið meir að segja og tíminn fer að byrja.. svooo ég er farin ;D.. langaði bara að láta heyrí mér.. þetta er aaaalveg að deygja.. en eitthverrraa hluta vegna vil ég frekar vera með blog.central síðuna heldur en bloggar.is .. þessir er meira aðlaðandi! ...

SayingSeinustuVikunnar; Heeeeeb!" :D

já.takk.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 18:25:23 / angela

Bryndísin

Ég gerði þetta blogg í gær (on the actual birth-DAY) en það kom ekki inn. Og ég vitna þá í gamla góða frasann "Betra seint en aldrei"

Hún á afmæli í dag.

Hún á afmæli í dag.

Hún á afmæli hún Bryndís.

 Hún á afmæli í daaaaagg.

Já. Hún Bryndís okkar er æðisleg stelpa. Og við skulum öll vona að hún hafi átt alveg hreint frábæran dag. Maður er ekki Sweet Sixteen alltaf. Nú get ég loksins farið að kalla hana jafningja. Green.

Bryndís þú ert frábær! Ekki láta neinn telja þér trú um annað. Ég sendi henni þessa afmæliskveðju fyrir hönd okkar allra "felix-a".

 Besta kveðja í heimi.. Angela -Afmælisstrumpur.

For the record.. Ég reyndi oft að setja þetta á Felix í gær en það bara gekk ekki. Don know why! :/


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 15:38:05 / helenaósk

stillingar =)

Sakna þessarar síðu..

Í algeri hreinskilni þá er hin síðan ekki að standa sig.

Þannig mig langaði bara að blogga hér eins og B&R.

For You I Will-Teddy Geiger er besta lag í heimi þessa stundina!

Það er hægt að gráta við það án þess að skammast sín
f. það ef þú hlustar á textan :)

Ekki það að ég hafi farið að gráta yfir því (;

 

En skólinn er byrjaður og ég á eftir að kaupa bækur :( æj ég geri það á morgum eða eitthvað. Ekkert að stressa mig á þessu :D Mér lýst samt alveg vel á þetta.. Ég er samt alltaf búin í skólanum klukkan 16:15 á mánu-,þriðju- & miðvikudögum :/ en ég er í eyðu líka á þessum dögum alltaf beint eftir akademíuna og alveg þangað til hádegið er búið :) fer heim að sofa. Vííí.

&& ég er að fara í sam beint eftir mat á mánudögum og eitthvað ekki í síðasta tíma eins og A L L I R aðrir sem ég þekki :/ þannig ég verð kannski bara ein =) búhú. hehe.

 

Annars langaði mig bara að rita nokkur orð og fara svo burt, halda kannski áfram með þessa síðu. Held að Rebekka&Bryndís séu til (; eða hvað?

.
.
listaverkið mitt þegar ég var 5 ára :)
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
lesa bloggið hjá stelpunum líka?
takk :)

» 9 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 00:37:00 / Bryndís

rebbi og bríta

hér situm við tvær saman snemma á föstudagsmorgni.... réttara sagt kl. 00:01 :D

Okkur datt þetta lika snjallræði í hug að blogga lítið blogg á þessari síðu, Söknum við hennar? kannski meira að meðan þessi síða var i gangi vildu stelpurnar hitta okkur. en ekki lengur:) höhö

felix?
 
ég veit ekki hvernig menningarnótt á að vera skemmtileg án okkar... við erum að fara á akureyri að keppa með fótboltanum á sunnudeginum en förum snemma á laugardeginum.  hvað gerir maður ekki fyrir fótboltan ? ;)  tökum þennan leik í bakaríið :D
kannski sauðarkróksbakarí :D
 
Skólaárið er að fara byrja:O Við erum allar að fara i sittoghvora áttina eða svona næstum, 3-3-2-1. Þetta er allt svo spennandi? Eða meira svona útí stressandi? EÐa tilhlökkun allavega segji eg fyrir mig að þetta samanblanda af mörgum tilfingum sem eg veit ekki hvað skal kalla:)
 
kvennó                                                          versló
 

MR                                                                  FS

gerum þetta bara stutt í kveld.... erum orðnar þreyttar ;) góða nótt og lifið heil :haha:

                          

er þetta ekki i tisku? mikið um þetta þessa dagana 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21